TærTunna varð til þegar tveir ungir Akureyringar sáu tækifæri til að bæta þjónustu sem hafði lítið verið í boði á svæðinu. Við tókum eftir því að margir glímdu við illa lyktandi og óhreinar ruslatunnur, sérstaklega yfir sumarmánuðina, og ákváðum að gera eitthvað í því.
Við erum tveir félagar frá Akureyri. Annar okkar er nýútskrifaður vélstjóri frá Verkmenntaskólanum á Akureyri (VMA) og hinn lauk nýverið námi við Menntaskólann á Akureyri (MA). Með sameiginlegan áhuga á verklegum lausnum, tækni og frumkvöðlastarfi ákváðum við að stofna TærTunna.
Frá upphafi var markmiðið að bjóða upp á faglega, áreiðanlega og umhverfisvæna þjónustu. Í stað þess að kaupa tilbúna lausn smíðuðum við okkar eigin sérútbúnu þrifakerru frá grunni. Kerran er hönnuð sérstaklega til að þrífa ruslatunnur og kör á skilvirkan hátt með öflugum búnaði sem gerir okkur kleift að skila hreinum og ferskum ílátum beint til viðskiptavina okkar.
Við leggjum metnað í að veita persónulega þjónustu, mæta á réttum tíma og skila verki sem sést. Fyrir okkur snýst þetta ekki bara um að þrífa tunnur – heldur að gera umhverfið snyrtilegra, draga úr lykt og auka vellíðan í kringum heimili og fyrirtæki.
Við erum stoltir af því að vera staðbundið fyrirtæki á Akureyri og hlökkum til að hjálpa sem flestum að halda ruslatunnunum sínum hreinum allt árið um kring.
Stofnendur TærTunna
Við notum lífbrjótanleg hreinsiefni og spörum vatn með háþrýstibúnaði.
Hagkvæmt verð án falinna kostnaðar.
Við smíðuðum okkar eigin kerru frá grunni, hönnuð sérstaklega fyrir tunnuþrif.
Akureyringar sem þjóna Akureyri og nágrenni.